Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendi Donald J. Trump, nýkjörnum forseta Bandaríkjanna heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni í kjölfar sigurs hans í forsetakosningum.

Forseti áréttaði í kveðju sinni rótgróna samvinnu og vináttu þjóðanna tveggja og bendir á langa sameiginlega sögu. Hann minnir þó á að þjóðirnar deildu mörgum mikilvægum gildum svo sem að þjóðirnar deildu einhuga frelsi til hugsana og tjáningar, jafnrétti kynjanna og að þjóðirnar tværi hafi í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð litarhafti eða trú. Hér má sjá fréttatilkynningu sem að forsetaskrifstofa sendi frá sér;

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson hefur í dag, miðvikudaginn
9. nóvember, sent Donald Trump, nýkjörnum forseta Bandaríkjanna,
heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni í kjölfar sigurs hans í
forsetakosningunum.


Forseti áréttaði í kveðju sinni rótgróna samvinnu og vináttu
þjóðanna tveggja og langa sameiginlega sögu sem teygði anga sína allt
aftur til þess er sæfarendur frá Íslandi og Grænlandi tóku land í Norður-
Ameríku fyrir meira en þúsund árum. Öldum síðar hefðu þúsundir
Íslendinga flutt búferlum vestur um haf og leitað nýrra tækifæra sem
nýbúar í frjálsum samfélögum.


Enda þótt Bandaríkin væru eitt stærsta lýðræðisríki veraldar en
Ísland eitt hið minnsta deildu þjóðirnar mörgum mikilvægum gildum; við
styðjum einhuga frelsi til hugsana og tjáningar, jafnrétti kynjanna og
höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð litarhafti eða trú.