Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra vill að Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, leiði lista Framsóknarflokksins í sveitastjórnarkosningunum í vor.

Í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði Guðni að hann teldi líklegt að hann myndi tilkynna ákvörðun sína á sumardaginn fyrsta. Hann er á fimmtudaginn.

Guðni var þingmaður Framsóknarflokksins og landbúnaðarráðherra um árabil. Hann var varaformaður flokksins og formaður frá 2007-2008.