Guðný Helga Herbertsdóttir er mætt aftur til starfa sem upplýsingafulltrúi Íslandsbanka eftir fæðingarorlof, en Dögg Hjaltalín gegndi starfinu í millitíðinni.

Guðný Helga er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í lögum og viðskiptum Evrópusambandsins frá Viðskiptaháskólanum í Árósum. Þá hefur hún m.a. verið blaðamaður á Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, og fréttakona á Stöð 2.