Guðný Halla Hauksdóttir hefur verið ráðin nýr forstöðumaður þjónustuvers hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Guðný Halla er viðskiptafræðingur að mennt en hún útskrifaðist frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011. Hún lauk auk þess MBA gráðu frá Háskóla Íslands árið 2014.

Guðný hefur starfað sem deildarstjóri þjónustuvers Vodafone og forstöðumaður þjónustuvers hjá Tali. Undanfarin tvö ár hefur hún verið sérfræðingur í þjónustumálum hjá VÍS.