Guðný Rósa Þorvarðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri einstaklingssviðs N1 og mun hún taka sæti í framkvæmdastjórn félagins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Guðný Rósa Þorvarðardóttir er viðskiptafræðingur (Cand. Oecon) frá Háskóla Íslands. Guðný hefur verið framkvæmdastjóri Paralogis frá 2005 og markaðs- og innkaupastjóri hjá Skeljungi 1995-2005.