Guðríður Arnardóttir og Hafsteinn Karlsson, sem skipuðu fyrsta og annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar gefa ekki kost á sér í sveitastjórnarkosningunum í vor. Þetta kemur fram á vef Kópavogsfrétta þar sem vísað er í félagsfund Samfylkingarinnar sem fór fram í Hamraborg í gærkvöldi.

„Guðríður Arnardóttir hefur leitt lista Samfylkingar í Kópavogi frá árinu 2006. Hún var formaður bæjarráðs frá 2010 til 2012. Á fundinum í kvöld sagði Guðríður að tíminn væri nú réttur hjá sér til að hætta í stjórnmálum í bili,“ segir á vef Kópavogsfrétta. Hafsteinn Karlsson bauð sig fyrst fram fyrir Samfylkinguna árið 2002 og hefur verið bæjarfulltrúi síðan.

Stjórn Samfylkingarinnar í Kópavogi mun skipa uppstillinganefnd sem ákveður röð frambjóðenda á lista flokksins í næstu sveitastjórnarkosningum sem fram fara næsta vor.