Aðalfundur Samtaka Iðnaðarins er haldinn í dag en Guðrún Hafsteinsdóttir var endurkjörinn sem formaður samtakanna. Guðrún fékk alls 95% greiddra atkvæða en hún verður formaður samtakanna fram að Iðnþingi 2017.  Kosningaþátttaka var 85,9%.

Alls gáfu átta kost á sér til almennrar stjórnarsetu. Kosið var um fimm sæti og hlutu þessi flest atkvæði: Agnes Ósk Guðjónsdóttir GK snyrtistofa, Árni Sigurjónsson Marel hf., Guðrún Jónsdóttir Héðinn hf., Egill Jónsson Össur hf., Eyjólfur Árni Rafnsson Mannvit hf.