Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís, endurkjörin formaður með 89,5% greiddra atkvæða. Guðrún verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2019.

Alls gáfu átta kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fimm sæti. Þeir sem setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:

  • Árni Sigurjónsson – Marel
  • Birgir Örn Birgisson – Domino's
  • Egill Jónsson – Össur
  • María Bragadóttir – Alvogen Iceland
  • Valgerður Hrund Skúladóttir – Sensa

Árni og Egill sitja áfram í stjórn en nýir eru Birgir Örn, María og Valgerður Hrund. Úr stjórn fara Agnes Ósk Guðjónsdóttir – GK-Snyrtistofa, Bergþóra Þorkelsdóttir – Ísam og Guðrún Jónsdóttir – Héðinn.

Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:

  • Katrín Pétursdóttir – Lýsi
  • Lárus Andri Jónsson – Rafþjónustan
  • Ragnar Guðmundsson – Norðurál
  • Sigurður R. Ragnarsson – ÍAV