Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís, endurkjörin formaður með 95,90% greiddra atkvæða. Guðrún verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2020.

Alls gáfu sjö kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fjögur sæti. Þeir sem setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:

  • Ágúst Þór Pétursson, húsasmíðameistari
  • Guðrún Halla Finnsdóttir, verkefnastjóri viðskiptaþróunar Norðuráls
  • Magnús Hilmar Helgason, framkvæmdastjóri Launafls í Fjarðabyggð
  • Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV

Sigurður situr áfram í stjórn en nýir eru Ágúst Þór, Guðrún Halla og Magnús Hilmar. Úr stjórn fara Katrín Pétursdóttir - Lýsi, Lárus Andri Jónsson - Rafþjónustan og Ragnar Guðmundsson - Norðurál.

Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:

  • Árni Sigurjónsson - Marel
  • Birgir Örn Birgisson - Pizza-Pizza
  • Egill Jónsson - Össur
  • María Bragadóttir - Alvogen Iceland
  • Valgerður Hrund Skúladóttir - Sensa