Á þingflokksfundi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í gær var kjörin ný stjórn þingflokksins, en í stjórn þingflokksins eru formaður, varaformaður og ritari.

Nýr formaður þingflokksins er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Fyrir kosningar gegndi Jón Bjarnason starfi þingflokksformanns en Jón er nú sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Álfheiður Ingadóttir er áfram varaformaður þingflokksins en Björn Valur Gíslason tekur við af Atla Gíslasyni sem ritari þingflokksins.