Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur ráðið tímabundið Guðjón Arnar Kristjánsson fv. alþingismann til sérstakra verkefna í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu . Guðjón Arnar mun einkum sinna verkefnum er snúa að undirbúningi brýnna breytinga á fiskveiðilöggjöfinni sem ráðherra hyggst leggja fram á haustþingi, líkt og boðað var að gert yrði í stjórnaryfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Í frétt á vef ráðuneytisins segir að Guðjón Arnar Kristjánsson hafi yfirgripsmikla þekkingu á íslenskum sjávarútvegi og telji sjávarútvegsráðherra sérstakan feng fyrir ráðuneytið að fá að njóta starfskrafta hans og mikillar reynslu.