Guðjón Auðunsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Reita fasteignafélags. Guðjón er rekstarhagfræðingur að mennt. Undanfarin níu ár hefur hann starfað sem framkvæmdarstjóri fyrirtækjasviðs hjá N1, áður Olíufélaginu Esso.

Áður vann hann sem framkvæmdarstjóri hjá Samvinnuferðum Landsýn, Navís Landsteinum og sem forstöðumaður hjá Eimskip. Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði útleigu atvinnuhúsnæðis. Fasteignir félagsins eru um 130 talsins.