Guðlaugur G. Sverrisson var rétt í þessu kjörinn formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur á borgarstjórnarfundi sem nú stendur yfir.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins var kjörinn varaformaður.

Aðrir voru kjörnir í stjórn Orkuveitunnar Júlíus Vífill Ingvarsson, Sjálfstæðisflokki, Sigrún Elsa Smáradóttir, Samfylkingu og Svandís Svavarsdóttir, Vinstri Grænum.

Guðlaugur, sem er verkefnastjóri, sat í 18. sæti lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir seinustu Alþingiskosningar, og er formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur.