Meðalverð á gullstöng á eBay var á sunnudag skráð á 1.044,75 dollara únsan. Fyrir nokkrum mínútum var markaðsverðið á Gold Price hins vegar skráð á 945,95 dollara og hefur aldrei náð 1.000 dollara markinu á þessu ári. Hefur verðið á eBay þannig að jafnaði verið nokkru hærra en opinbert viðmiðunarverð á markaði.

Gullverð á uppboðsvef eBay er að jafnaði talsvert hærra en opinbert viðmiðunarverð á heimsmarkaði. Eigi að síður telja margir að eBay sýni raunverulegri tölur um hvernig kaupin gerast á eyrinni hjá Pétri og Páli.

Líklega er gullmynt þægilegri verslunarvara á eBay en gullstangir. Þar er verð á American Gold Eagle myntinni (1/10 úr únsu) skráð á 122,08 dollara stykkið og verð á kanadísku gullmyntinni Maple Leaf Gold (líka 1/10 úr únsu) var skráð á 119 dollara stykki. Suður-Afríku gullmyntin Krugerrand í sömu þyngd er skráð á 114,97 dollara stykkið að meðaltali á eBay.