Gullverð hefur lækkað í morgun eftir að hafa náð meðhæðum um tíma í gær í um 1.005 dollurum á únsu.

Lokaverð í gær var um 1.002 dollara, en nú í morgun lækkaði verðið niður í 992,8 dollara á únsuna samkvæmt verðsjá Goldprice. Það hefur þó örlítið verið að stíga að nýju síðustu mínútur og er þessa stundina í 993,8 dollurum.