Guðmundur Ásgeirsson, 2. varamaður Steinunnar Jónsdóttur, mun taka sæti hennar sem aðalmaður í stjórn Íslandsbanka hf. Tómas Sigurðsson sem verið hefur 1. varamaður Steinunnar Jónsdóttur í stjórn Íslandsbanka hf., hefur tilkynnt formanni stjórnar að hann verði að segja af sér sem varamaður í stjórn bankans. Tómas hefði sjálfkrafa orðið aðalmaður í stað Steinunnar í kjölfar afsagnar hennar úr stjórn bankans, en það er niðurstaða Tómasar að starf aðalmanns í stjórn Íslandsbanka hf. fái ekki samrýmst þeim skyldum sem fylgja aðalstarfi hans hjá deCode genetics.