Guðmundur A. Birgisson hefur selt 2,75 milljónir hluta í HB Granda á genginu 10,5. Fyrir hlutina fær Guðmundur því tæpar 29 milljónir króna. Hlutabréf HB Granda hafa hækkað um 5% í dag samkvæmt Markaðsvakt Mentís.
Guðmundur heldur eftir 30.000 hlutum. Guðmundur gegnir jafnframt stöðu varamanns í stjórn Granda áfram.
Heildarhlutafé HB Granda telur rúmlega 1.700 milljónir hluta.