Guðmundur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar TM, hefur í dag
látið af störfum hjá félaginu.  Óskar B. Hauksson, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs, tekur við störfum Guðmundar á sviði viðskiptaþróunar og Hjálmar
Sigurþórsson, framkvæmdastjóri tjónaþjónustu, tekur við störfum hans á sviði
endurtrygginga.