Guðmundur Björn Eyþórsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vesturferða á Ísafirði. Hann hóf störf 1. apríl síðastliðinn. Guðmundur lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði af ferðaþjónustu- og markaðssviði Háskólans á Akureyri 2002 og MBA námi frá Viðskiptaháskólanum í Kalmar í Svíþjóð 2003.

Guðmundur starfaði áður sem hótelstjóri á Smárahóteli í Kópavogi og sem markaðsstjóri á Hótel Vík í Reykjavík segir í frétt á vef Bæjarins besta á Ísafirði.