Guðmundur Valur Stefánsson framkvæmdastjóri Sæsilfurs hefur látið af störfum að eigin ósk.  Guðmundur er einn af stofnendum Sæsilfurs og hefur verið framkvæmdastjóri þess frá upphafi. Stjórn Sæsilfurs hefur í stað Guðmundar Vals ráðið Simin Pauli Sivertsen.  Simin er  42 ára Færeyingur frá Klaksvik.  Hann starfaði áður hjá East Salmon í Færeyjum í 12 ár, þar af sem rekstrarstjóri síðustu sex ár.

East Salmon er eitt af þremur stærstu framleiðendum á laxi í Færeyjum.