Guðni Ágústsson, alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins, verður á hringferð um landið næstu dagana.

Hann mun heimsækja fólk og fyrirtæki og boða til opinna funda þar sem rætt verður um stjórnmálaástandið og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar, verðbólguna og vaxtaokrið og almennt um stöðu þjóðarbúsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framsóknarflokknum.

Fundirnir sem bera yfirskriftina „Tími aðgerða í efnahagsmálum er runninn upp“ eru öllum opnir og verða sem hér segir:

Mánudaginn 25. ágúst kl. 20:30 - Félagsbæ við Borgarbraut í Borgarnesi.

Þriðjudaginn 26. ágúst kl. 20:30 – Ljósheimum í Skagafirði.

Miðvikudaginn 27. ágúst kl. 20:30 – Skipasmíðastöðinni á Húsavík.

Fimmtudaginn 28. ágúst kl. 20:30 – Austrasalnum á Egilsstöðum.

Mánudaginn 1. september kl. 20:30 – Þingborg í Hraungerðishreppi.