Guðni Halldórsson, 35 ára viðskiptalögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst, hefur lýst yfir framboði til formanns í Frjálslynda flokknum á landsþingi flokksins sem haldið verður í Stykkishólmi 13.-14. mars. Hann hefur einnig ákveðið að bjoða sig fram í efsta sæti í prófkjöri flokksins í Norðvesturkjördæmi sem fram fer vikuna 2.-8. mars, að því er segir í tilkynningu frá Guðna. Guðjón A. Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins er þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Í tilkynningu frá Guðna Halldórssyni segir orðrétt:

„Ljóst er að miklir umbrotatímar eru í íslensku samfélagi. Sjaldan eða aldrei hefur verið mikilvægara en að íslenska þjóðin standi saman í þeim erfiðleikum sem öllum eru ljósir. Til þess þarf að veljast nýtt fólk til forystu í íslenskum stjórnmálum.

Ég vil beita mér fyrir því að koma Frjálslynda flokknum í fremstu röð í íslenskum stjórnmálum. Til þess þarf ég stuðning og styrka hönd félagsmanna á landsfundinum og þátttöku kjósenda í því prófkjöri sem framundan er. Átök innan þingflokks Frjálslynda flokksins og flokksins sjálfs á undanförnum árum, hafa ekki orðið til þess að auka við fylgi hans né trúverðugleika. Ég tel að sátt þurfi að nást um nýjan formann sem hefur ekki tekið þátt í innra starfi flokksins og átökum á undanförnum árum.

Ég legg áherslu á að skapa fjölskyldum og einstaklingum sanngjarnt samfélag með lægri sköttum og jafnri stöðu þeirra innan bótakerfisins, ég legg til að lækkaðir verði tekjuskattar á einstaklinga og fyrirtæki um helming, hafnar verði viðræður við helstu viðskiptalönd Íslands um upptöku nýs gjaldmiðils þjóðarinnar auk þess sem ég tel að skoða beri inngöngu Íslands í NAFTA. Þá hef ég það að stefnumáli fyrir komandi kosningar að flokkurinn beiti sér fyrir því að afskrifa allar skuldir hér á landi um a.m.k. 25% óháð uppruna þeirra og það eigi við jafnt um einstaklinga og fyrirtæki.“

Guðni segist hafa ákveðið að eyða engum peningum í prófkjörsframboð sitt og hvetur aðra frambjóðendur til hins sama. Hann stundar nú meistaranám í lögfræði við Bifröst og hefur undanfarið ár rekið eigið ráðgjafarfyrirtæki en starfaði áður í fyrirtækjaráðgjöf Spron. Hann er búsettur í Borgarnesi og á einn son.