Gunnar Andri Þórisson, fyrirlesari og eigandi Söluskóla Gunnars Andra, er einn meðhöfunda næstu bókar bandaríska fyrirlesarans Brians Tracy. Bókin heitir Against the Grain og kemur út í haust.
„Ég sá Brian Tracy fyrst fyrir tuttugu árum, þá í Cleveland, Ohio, þar sem hann talaði fyrir framan fjögur til fimm þúsund manns. Ég hugsaði þá að einn góðan veðurdag myndi ég standa uppi á sviði, halda fyrirlestra og námskeið, en grunaði ekki að ég myndi kynnast Tracy og skrifa bók með honum,“ segir Gunnar Andri um forsögu þess að hann skrifar bók með Bandaríkjamanninum.
Tracy, sem hefur skrifað fjölda bóka og er metsöluhöfundur, hefur margsinnis komið til landsins og haldið hér fyrirlestra. Gunnar Andri hafði hitt Tracy í nokkur skipti en fyrir um ári fóru þeir ásamt fleirum á Argentínu steikhús. „Við náðum afar vel saman og það sannaðist enn og aftur hvað heimurinn er lítill. Það kom í ljós að við eigum mikið af sameiginlegum vinum,“ segir hann.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér .