Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson hefur á síðustu dögum verið duglegur að skipa starfshópa, en líklegt má telja að hann sé á síðustu dögum sínum í embætti sem starfandi ráðherra.

Um daginn bárust fréttir af því að hann hefði skipað starfshóp sem endurskoða eigi lög og reglur um kaup erlendra aðila á bújörðum, en nú vill hann hjálpa íslenskum landbúnaði að koma á framfæri upplýsingum um vörur sínar.

Nýi starfshópurinn á að móta hvernig betur megi koma upplýsingum um sýklalyfjanotkun við framleiðslu matvæla úr dýrarýkinu á framfæri við neytendur. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins .

„Markmið með þessari vinnu er að upplýsa neytendur um þá eftirsóknarverðu stöðu sem íslensk matvælaframleiðsla býr við vegna lítillar sýklalyfja- og varnarefnanotkunar í íslenskum landbúnaði og fiskeldi samanborið við önnur lönd,“ segir í frétt ráðuneytisins.

„Auk þess er hreinleiki vatns og lofts á Íslandi með því besta sem gerist. Starfshópnum er ætlað að taka saman upplýsingar um sýklalyfjanotkun við framleiðslu matvæla úr dýraríkinu bæði hér á landi og í okkar helstu viðskiptalöndum.

Hópurinn mun jafnframt koma með tillögur hvernig best sé að koma þessum upplýsingum á framfæri við neytendur og hvaða hætta getur stafað af mikilli sýklalyfjanotkun, t.d. varðandi fjölónæmar bakteríur.

Hópurinn verður skipaður fimm fulltrúum; einum tilnefndum af Neytendasamtökunum, einum tilnefndum af Bændasamtökum Íslands, einum tilnefndum af Matvælalandinu Ísland og tveimur sem tilnefndir eru af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.“