Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra kemur til með að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.

Elsa Lára Arnardóttir þingmaður skipar annað sæti listans og Sigurður Páll Jónsson þriðja sætið. Niðurstaðan var kynnt á kjördæmaþingi flokksins síðdegis.

Í tilkynningu til fjölmiðla - kemur fram að 16 manns skipa listann, níu karlar og sjö konur. Meðalaldur frambjóðenda sé 42 ár; yngsti frambjóðandinn er 19 ára og sá elsti 75 ára.