Þingflokkur framsóknarmanna valdi á fundi sínum í dag Gunnar Braga Sveinsson sem formann þingflokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson var kjörinn varaformaður og Vigdís Hauksdóttir ritari.

Gunnar Bragi tekur við þingflokksformennsku af Siv Friðleifsdóttur. Gunnar Bragi er Skagfirðingur, giftur Elvu Björk og eiga þau fimm stráka. Hann er oddviti Framsóknarflokks í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjörður