Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, mætti í dag aftur til starfa á Alþingi. Gunnar bragi hafði verið í launalausu leyfi frá þingstörfum eftir að klaustursmálið margrómaða stóð í hámæli. Hann greinir frá þessu í fréttatilkynningu, sem sjá má neðst í fréttinni. Í tilkynningunni segir Gunnar Bragi að „stundunum séu ákvarðanir nánast teknar fyrir mann. Fremur óvænt – en samt ekki - blasi svarið við því hvenær rétt sé að snúa til baka. Fyrstu dagar þingfunda á nýju ári, og framganga forseta Alþingis að undanförnu, séu með þeim hætti að annað sé óhjákvæmilegt en að nýta sér allan rétt til þess að vera inni á þeim leikvelli þar sem að honum er sótt og svara fyrir sig á þeim vettvangi en ekki utan hans. Þess vegna mæti hann á nýjan leik til starfa sinna á Alþingi í dag.

Flokksbróðir Gunnars Braga, Bergþór Ólason, hyggst einning snúa aftur til starfa. Hann greindi frá því í aðsendri grein í Morgunblaðinu . Hann greinir þó ekki nákvæmlega frá því hvenær hann muni snúa aftur.

Fréttatilkynning Gunnars Braga í heild sinni:

Í kjölfar óviðeigandi og særandi orða og ólögmætrar upptöku á þeim þá tók ég þá ákvörðun að taka mér launalaust leyfi frá þingstörfum eftir að hlerunarmálið umtalaða komst í hámæli. Ég vildi skoða hug minn, safna kröftum og ræða síðan við bakland mitt. Ég iðrast og hef beðist fyrirgefningar á orðum mínum og geri það enn á ný.

Ég hef leitað ráðgjafar og um leið notið mikils skilnings og stuðnings ættingja, vina og félaga innan flokks og utan. Þakka ég þeim hvatninguna og traustið.

Miðflokkurinn gaf mér það svigrúm sem ég óskaði eftir og hvorki hvatti mig né latti til að flýta endurkomu minni. Vel má skilja það hlutleysi sem vísbendingu um að hvorki ég né aðrir væru ómissandi fyrir flokkinn og undir það tek ég heilshugar. Ég var á hinn bóginn kosinn til starfa á Alþingi af fjölda fólks og gagnvart því ber ég ríkar skyldur. Þær vildi ég að sjálfsögðu rækja á nýjan leik í fyllingu tímans. Þakka ég þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sem hafa sett sig í samband við mig og minnt mig á þessar skyldur mínar og hvatt mig til starfa.

Stundunum eru ákvarðanir nánast teknar fyrir mann. Fremur óvænt - en samt ekki - blasir svarið við því hvenær rétt sé að snúa til baka. Fyrstu dagar þingfunda á nýju ári, og framganga forseta Alþingis að undanförnu, er með þeim hætti að annað er óhjákvæmilegt en að nýta sér allan rétt til þess að vera inni á þeim leikvelli þar sem að mér er sótt og svara fyrir mig á þeim vettvangi en ekki utan hans. Þess vegna mæti ég á nýjan leik til starfa minna á Alþingi í dag.

Reykjavík 24. janúar 2019

Gunnar Bragi Sveinsson