Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknar, hefur sent formanni kjördæmissambands framsóknarmanna í norðvestur kjördæmi tilkynningu um að hann sækist eftir fyrsta sæti á lista framsóknarmanna í kjördæminu í komandi Alþingiskosningum.

„Verkefni næstu fjögurra ára er að snúa við þeirri ringulreið og ósamstöðu sem því miður hefur einkennt stjórn landsins undanfarin fjögur ár, og sem komið hefur í veg fyrir að hin fjölmörgu tækifæri landsins hafa ekki verið nýtt sem skyldi,“ segir Gunnar Bragi í tikynningu til fjölmiðla.