Fyrirtæki í eigu Gunnars M. Björgvinssonar, fjárfestis í Liechtenstein, hefur bætt við sig hlutum í Avion Group. Kaupin nú eru upp á 2,3 milljarða króna og er eign Gunnars í Avion nú um 4,3 milljarðar króna miðað við gengið 38,3 en kaupin nú fóru fram á því gengi

Það er fyrirtækið Besinor Trade & Finance Corp sem kaupir en það er í eigu og stjórnað af Haora Foundation, Liechtenstein sem hefur verið tilkynnt sem fjárhagslega tengd fyrirtæki Gunnars M Björgvinssonar.