Gunnar Dofri Ólafsson og Sverrir Jónsson hafa verið ráðnir til SORPU bs. á skrifstofu framkvæmdastjóra, sem var stofnuð í kjölfar skipulagsbreytinga hjá SORPU, og hafa báðir þegar hafið störf.

Gunnar Dofri tekur við nýju starfi sérfræðings í samskiptum og samfélagsvirkni. Í starfinu felast meðal annars samskipti við fjölmiðla, markaðsmál, fræðsla- og kynningarmál, ritstjórn á vef SORPU og samfélagsmiðlum auk stefnumótunar og áætlanagerðar.

Sverrir tekur við nýju starfi sérfræðings í innkaupum. Í starfinu felast meðal annars ábyrgð á stefnumótun í innkaupum og sölu á vettvangi SORPU ásamt þróun og innleiðingu verklags er varðar innkaup og sölu. Sverrir hefur auk þess yfirumsjón með samningum og áhættugreiningu og utanumhald um UT birgja.

Gunnar Dofri er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað sem blaðamaður og samfélagsmiðlastjóri á Morgunblaðinu og mbl.is, fréttamaður á fréttastofu RÚV, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands og lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Gunnar er auk þess í meistaranámi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Sverrir er vörustjórnunarfræðingur frá Háskóla Reykjavíkur með yfir 20 ára reynslu á sviði vörustjórnunar.  Hann hefur starfað sem innkaupastjóri hjá Valitor, verkefnastjóri innkaupa hjá Isavia, í viðskiptastýringu Origo, framkvæmdarstjóri innflutnings og dreifingarsviðs Opinna kerfa sem og innkaupastjóri Opinna kerfa.