Pappírsinnflytjandinn Gunnar Eggertsson hf. hefur keypt Tarra ehf., sem einnig er þjónustufyrirtæki í prentiðnaði. Starfsemi fyrirtækjanna verður sameinuð en Tarra verður rekið sem sérhæfð þjónustueining innan Gunnars Eggertssonar hf.

Fram kemur í tilkynningu að Gunnar Eggertsson hf. er eitt helsta fyrirtæki landsins sem þjónar prentiðnaðinn með innflutningi á pappír, prentplötum og öðrum vörum fyrir atvinnugreinina. Tarra hefur einkum veitt skiltagerðum, prentsmiðjum, teiknistofum og stærri skrifstofum þjónustu með innflutningi á prentrúllum, skurðarfilmum, auglýsingaplötum, prenthylkjum og tækjabúnaði.

Með kaupunum á Tarra breikkar þjónustusvið Gunnars Eggertssonar hf. til muna, en fókusinn helst eftir sem áður á lausnum fyrir prentþjónustu.