Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fundaði í dag með Lamberto Zannier, framkvæmdastjóra Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Þeir ræddu starf stofnunarinnar í aðildarríkjunum og verkefni hennar í Úkraínu. Zannier þakkaði Íslandi sérstaklega fyrir þátttökuna í verkefnum ÖSE í Úkraínu og fyrir sýnilegt hlutverk í eftirlitssveit stofnunarinnar þar. Gott orð fari af vinnu Íslands.

Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að Ísland hefur tekið virkan þátt í verkefnum ÖSE í Úkraínu. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra fer þar fyrir einu af 10 eftirlitsteymum stofnunarinnar í landinu. Nú er unnið að því að fjölga eftirlitsmönnum hennar úr eitt hundrað í fimm hundruð. Þá átti Ísland fulltrúa í alþjóðlegu eftirliti í mars sl. byggt á svokölluðu Vínarskjali sem veitir þátttökuríkjum heimild til að bjóða ríkjum sem lýst hafa yfir áhyggjum af hernaðarumsvifum að kynna sér frá fyrstu hendi aðstæður á staðnum.

Að tillögu utanríkisráðherra ákvað ríkisstjórnin fyrir helgi að auka stuðning við eftirlitsverkefni ÖSE í Úkraínu. Íslensk stjórnvöld munu leggja sex milljón króna fjárframlag til verkefnisins auk þess sem ráðuneytið sendir annan starfsmann til starfa.

Gunnar Bragi er staddur í Vín, Austurríki þar sem hann situr ráðherrafund Evrópuráðsins, samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins.