Gunnar H. Sverrisson hefur verið ráðinn forstjóri Odda. Hann tekur við starfinu af Þorgeiri Baldurssyni, sem verið hefur forstjóri Odda og tengdra félaga frá árinu 1983 og starfað hjá fyrirtækinu síðan 1960.

Gunnar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann starfaði áður sem forstjóri hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) og tengdum félögum 2004-2014. Gunnar var fjármálastjóri ÍAV 1998-2004, forstöðumaður stjórnunarsviðs Kaupþings 1996-1998 og fjármálastjóri Ármannsfells 1992-1996.

Þess má geta að hann sat í stjórn Plastprents 1999-2003, en það fyrirtæki var sameinað Odda árið 2012. Eiginkona Gunnars er Sigríður Hrólfsdóttir rekstrarhagfræðingur og eiga þau þrjú börn.

Oddi er stærsti pappírs- og plastframleiðandi landsins. Auk þess býður fyrirtækið upp á víðtæka prentþjónustu. Um 240 starfsmenn vinna hjá Odda, sem þjónustar jafnframt 3.500 viðskiptavini.