Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd „óháðra sérfræðinga,“ eins og það er orðað í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, sem gera mun tillögur til ríkisstjórnar og Stjórnarráðsins um viðbrögð af hálfu stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis til þess að rannsaka aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða.

Nefndin er skipuð Gunnari Helga Kristinssyni, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem er formaður, Oddnýju Mjöll Arnardóttur, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Ómari H. Kristmundssyni, dósent í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, Kristínu Benediktsdóttur, hdl., og Trausta Fannari Valssyni, lektor við lagadeild Háskóla Íslands.

Í tilkynningunni segir að fyrir liggi að rannsóknarnefndin muni skila ítarlegri skýrslu til Alþingis í byrjun febrúar og á vettvangi forsætisráðuneytisins hafi verið fjallað um hugsanleg viðbrögð við atriðum sem fram kunna að koma í skýrslunni og beinast að stjórnsýslunni og starfsháttum Stjórnarráðsins.

Þá segir að nefndin skuli taka skýrslu rannsóknarnefndarinnar til ítarlegrar umfjöllunar og meta þau atriði sem beinast kunna sérstaklega að stjórnsýslunni og starfsháttum Stjórnarráðsins.

„Nefndin skal svo fljótt sem auðið er gera tillögur til forsætisráðherra og ríkisstjórnar um hugsanleg viðbrögð við þeim í samræmi við ábendingar rannsóknarnefndarinnar,“ segir í tilkynningunni.