Gunnar Henrik B. Gunnarsson fjárfestir og stjórnarmaður Kaldalóns seldi hlutabréf í fasteignafélaginu fyrir 30 milljónir króna í gegnum eignarhaldsfélagið Investar í gær. Hann seldi 15 milljónir að nafnverði á genginu 2 krónur á hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Investar var þrettándi stærsti hluthafi Kaldalóns um mánaðamótin og fór með um 84,5 milljónir hluti í fasteignafélaginu, samkvæmt hluthafalista félagsins. Í kauphallartilkynningunni kemur fram að fjöldi hluta fjárhagslegra tengdra aðila Gunnars í Kaldalóni sé um 104,6 milljónir talsins, að markaðsvirði 209 milljónum króna, eftir söluna í gær.