Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson hefur tekið við stöðu rekstrarstjóra (Chief Operating Officer) hjá leikjafyrirtækinu Plain Vanilla. Gunnar er 28 ára og stofnaði hugbúnaðarfyrirtækið Clarav árið 2008. Clara var sem kunnugt er selt bandaríska hugbúnaðarrisanum Jive Software í fyrravor.

Fram kemur í tilkynningu að Gunnar muni starfa við hlið Þorsteins Baldurs Friðrikssonar, forstjóra Plain Vanilla, og verður meginverkefni hans að taka þátt í að leiða fyrirtækið í gegnum hinn hraða vöxt sem fylgt hefur útgáfu og vinsældum QuizUp spurningaleiksins. Gunnar hefur þegar hafið störf.

Kitlaði að koma aftur

Gunnar hefur búið í San Francisco undanfarin ár og starfað hjá Jive Software en flytur nú aftur til Íslands til að taka við starfinu hjá Plain Vanilla. Um ástæðu þess að Gunnar sneri til Plain Vanilla segir hann að Þorsteinn hafi beðið sig vikulega síðan í fyrravor hvort hann vilji ekki koma yfir:

„Það kitlaði alltaf mjög mikið og á endanum gat ég ekki staðist freistinguna og sló til. Þetta leggst vel í mig enda er Plain Vanilla mjög spennandi fyrirtæki á alþjóðlegan mælikvarða. Þetta sést m.a. á því að það er mikið rætt um Plain Vanilla manna á meðal í Kísildalnum þar sem ég hef starfað undanfarið.“