Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri Skeljungs, situr áfram sem stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar, en stjórnarmenn félagsins skiptu með sér verkum eftir aðalfund félagsins í gær.

Nýir í stjórnina koma Árni Hauksson varaformaður og Pétur Guðmundarson meðstjórnandi. Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group, og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, standa upp úr stjórnarsætum sínum.

Aðalfundurinn samþykkti að þóknun formanns verði 300 þúsund krónur á mánuði og annarra stjórnarmanna 150.000 krónur. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Tryggingamiðstöðin er í eigu FL Group.