Gunnar Nelson sem jafnframt er einn af stærstu hluthöfum félagsins tók nýverið við kyndlinum sem stjórnarformaður Mjölnis. Gunnar hefur þó ekki hugsað sér að fara úr keppnisgallanum og í jakkafötin í bráð segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

“Mjölnir hefur verið afar stór hluti af mínu lífi undangengin 13 ár og ég tek stoltur að mér það hlutverk að verða formaður félagsins," segir Gunnar.

,,Með þessu hef ég þó ekki í hyggju að fara að skipta mér mikið af rekstrinum. Afar vandað fólk er í því hlutverki. Ég mun hinsvegar vera virkur þátttakandi í stefnumótun og eflingu íþrótta- og keppnisstarfs. Hér hefur minn bardagaferill mótast og mun halda áfram að gera það næstu árin en samhliða mun ég nýta reynslu mína til að styðja aðra í sinni mótun.”

Ár breytinga með flutning í Öskjuhlíð

Árið sem nýliðið er fól í sér miklar breytingar, hvort tveggja á húsakosti og mannauð félagsins. Þessar breytingar eru nú að mestu afstaðnar og starfsemin komin á fulla keyrslu. Árið 2017 var ár mótunar, flutninga og áherslubreytinga hjá Mjölni.

Vaxtarverkirnir sem fylgdu flutningum í húsakynni félagsins við Flugvallarveg eru að mestu afstaðnir og er staðan nú, á upphafsvikum nýs árs, sú að aldrei hafa verið fleiri tímar í reglubundinni dagskrá og meðlimir aldrei verið fleiri en nú.

Mannabreytingar fylgdu ósætti

“Breytingum eins og þeim að flytja í mun stærra húsnæði fylgdu skiljanlega áherslubreytingar. Það þurfti að eiga sér stað smá naflaskoðun og það þurfti að leggja nýjar línur. Ekki var einróma sátt um þær ákvarðanir sem teknar voru og mannabreytingar fylgdu í kjölfarið," segir Gunnar.

,,Eftir stendur sterkur og samstíga hópur sem lítur framtíðina björtum augum. Þetta var erfitt á meðan á því stóð en við sem eftir erum, erum sannfærð um að rétt skref hafi verið stigin. Við erum að horfa fram veginn og erum með áætlun um hvernig við ætlum að haga uppbyggingu félagsins. Meðlimir eru fleiri, tímataflan hlaðnari og stemmningin betri en nokkru sinni fyrr. Þannig að það er á hreinu að við erum að gera eitthvað rétt.“

,,Allir geta æft í Mjölni”

Hjá Mjölni er fjölbreytt dagskrá í boði og flestir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi þar. Í viðbót við allar þær bardagaíþróttir sem hægt er að æfa þar, er hægt að stunda ýmisskonar þrek og styrktarþjálfun. Jafnframt er góð aðstaða til hverskyns líkamsræktar.

“Það eru mögulega ennþá einhverjir sem halda að það séu bara þeir sem séu sáttir við fá högg í andlitið sem geti æft hjá Mjölni. Það er náttúrulega alrangt,” segir Gunnar með bros á vör.

,,Allir geta æft í Mjölni. Hvort sem hugurinn leiðir þig að bardagaíþróttum eða einhverri annarri hreyfingu og rækt. Aðstaðan er frábær, dagskráin fjölbreytt og mig langar að nota þetta tækifæri til að ítreka að öllum sem langar að æfa í Mjölni stendur það til boða.”

Hyggst keppa áfram

Gunnar verður þrítugur á þessu ári og því er nokkuð ljóst að nóg er eftir af hans atvinnuferli í MMA/blönduðum bardagalistum. Má sem dæmi nefna að Tyron Woodley sem er ríkjandi heimsmeistari UFC í þyngdarflokki Gunnars verður þrjátíu og sex ára á þessu ári. Jafnframt eru fjölmargir af hæst skrifuðu bardagamönnum jarðar komnir langt inn á fertugsaldurinn.

,,Ég er ekki í nokkrum vafa um að mín bestu ár sem bardagamaður eru fyrir framan mig. Í seinasta bardaga leið mér betur en nokkru sinni áður," segir Gunnar. ,,Var hraðari, sterkari og skarpari en ég hafði áður verið í bardaga. Bardaginn fór eins og hann fór en ég tek þessa vissu mér út úr búrinu og geri ráð fyrir að vera enn ferskari næst þegar einhver fæst til að mæta mér”

Gunnar segir aðstöðuna í Mjölni til æfinga vera með því besta sem gerist í heiminum. ,,Menn allstaðar að flykkjast til Íslands til að æfa með okkur og trúa varla hvað aðbúnaðurinn er góður. Hér á landi eru svo sífellt að koma upp fleiri og fleiri bardagamenn með fullt erindi inn á stóra sviðið. Það eru góðir tímar framundan.”