Gunnar Hilmarsson og Kolbrún Gunnarsdóttir, sem löngum hafa verið kennd við fataverslunina GK, hafa látið af störfum hjá Andersen & Lauth en Esther Jetten hefur verið ráðin til stýringar í framleiðslu og vörudreifingu.

Samhliða þessum breytingum var stofnað dótturfélag í Hollandi til að sjá um framleiðslu- og sölumál félagsins en vörur þess eru seldar í rúmlega 300 verslunum í um 12 löndum. Til að mæta þeim áskorunum í rekstrinum sem vextinum fylgir hefur félagið opnað söluskrifstofu í Hollandi.