Lögmennirnir Gunnar Sv. Friðriksson og Þuríður B. Sigurjónsdóttir eru nýir eigendur að lögmannsstofunni Lögmenn Hafnarfirði. Fyrri eigendur voru lögmennirnir Ólafur heitinn Rafnsson, Bjarni S. Ásgeirsson og Ingi H. Sigurðsson. Þeir Bjarni og Ingi munu enn um sinn starfa á stofunni.

Fram kemur í tilkynningu að lögmannsstofan muni áfram sinna lögmannsþjónustu fyrir gamla viðskiptavini og bjóða nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna. Stofan mun hér eftir sem hingað til veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum þjónustu.