Gunnar Örn Kristjánsson viðskiptafræðingur sem nýlega var skipaður í bankaráð Kaupþings, hefur óskað eftir því við fjármálaráðherra að láta af störfum að því er segir í frétt á heimasíðu fjármálaráðuneytisins.

Skipan Gunnars bar brátt að og við nánari skoðun taldi hann starfið viðameira og fela í sér meiri bindingu en hann hefur aðstöðu til að inna af hendi segir í fréttinni.

Fjármálaráðherra hefur í dag fallist á beiðni Gunnars Arnar og mun nýr fulltrúi verða skipaður í ráðið í hans stað hið fyrsta.