Gunnar Pétur Garðarsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Eignaumsjónar hf. Hann mun leiða fjármálasvið félagsins, uppbyggingu þess og þróun.

Gunnar er 35 ára með Ms gráðu í Reikningshaldi og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík. Gunnar starfaði síðast sem viðskiptastjóri á lánaborði hjá Arion banka hf. og þar áður hjá Deloitte við endurskoðun og reikningshald.