Gunnar Haraldsson hefur verið ráðinn sölu- og markaðsstjóri Ísafoldarprentsmiðju. Gunnar hefur starfað síðastliðin rúm 20 ár hjá Prentsmiðjunni Odda ehf.  Nú síðast sem sölustjóri og  rekstrar og þjónustustjóri.  Gunnar er iðnrekstrarfræðingur af markaðssviði frá Tækniskóla Íslands.  Hann er kvæntur Kristínu Ögmundsdóttur sjúkraliða og eiga þau fjögur börn.