Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands og fyrrverandi ritstjóri Fréttatímans, segist ætla að leiða saman á lista alla þá sem vilja hefna sín á borgaryfirvöldum í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Segir hann frá því á facebook síðu sinni að hann hafi axlarbrotnað í hálkunni og þurfi að fara í aðgerð en hann ætli sér að hefja undirbúning að framboði sínu til borgarstjórnar strax og hann vaknar eftir aðgerðina.

Þetta verði listi þeirra sem hafa brotnað vegna vanrækslu borgarinnar við að salta og sandbera, en kannski einnig þeirra sem borgin greiðir skammarlega lág laun fyrir sem og lífeyrisþega og þá sem hafa þurft að þola húsnæðiseklu vegna þess að borgin byggi aðeins fyrir ferðamenn og ríkt fólk.

„Ég axlarbrotnaði í hálkunni og fer í aðgerð á morgun þar sem öxlin verður skrúfuð saman. Þegar ég vakna eftir aðgerðina ætla ég að hefja undirbúning framboðs til borgarstjórnarkosninga. Þetta verður listi þeirra sem hafa brotnað vegna vanrækslu borgarinnar við að sandbera eða salta gangstéttir, hefnd hinna brotnu gegn borgaryfirvöldum sem er fyrirmunað að sinna einföldustu hlutum sem snúa að öryggi og lífskjörum borgarbúa.

Kannski víkkum við framboðið út svo það nái líka yfir láglaunafólk sem borgarstjórn greiðir skammarleg laun og kann ekki að skammast sín fyrir. Og lífeyrisþega, láglaunafólk og annað fátækt fólk sem hefur mátt þola grimma húsnæðiseklu á meðan borgin byggir aðeins fyrir túrista og hina ríku. Og kannski fleiri, fer eftir því hvernig svæfingin fer í mig.“