Century Aluminum hefur ráðið Gunnar Guðlaugsson til að stýra öllum álverum fyrirtækisins á heimsvísu. Nýr starfstitill Gunnars er „Executive Vice President, Global Operations“.  Auk álvers Norðuráls á Grundartaka, rekur Century þrjú álver í Norður-Ameríku og rafskautaverksmiðju í Hollandi. Samanlögð ársframleiðsla er yfir milljón tonn af áli.

Gunnar hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2008. Fyrst sem framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga og sem forstjóri frá árinu 2019. Því hlutverki mun hann sinna áfram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðuráli en í henni kemur jafnframt fram að gerðar hafa verið aðrar breytingar hjá fyrirtækinu.

Gauti Höskuldsson
Gauti Höskuldsson

Gauti Höskuldsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra skautsmiðju og kerskála Norðuráls, mun jafnframt taka við nýrri stöðu hjá Century Aluminum sem „Vice President, Global Operations” og starfa með Gunnari hér heima og ytra. Gauti hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 1999 en hefur gegnt hlutverki  framkvæmdastjóri skautsmiðju- og kerskála frá 2009.

Sigrún Helgadóttir
Sigrún Helgadóttir

Sigrún Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga og mun hafa yfirumsjón með daglegum rekstri álversins. Sigrún hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2012, síðustu ár sem framkvæmdastjóri starfsmanna- og innkaupasviðs. Áður starfaði Sigrún m.a. hjá Kaupþingi, í Kauphöllinni í Osló og Verðbréfaþingi Íslands.

Birna Björnsdóttir
Birna Björnsdóttir

Birna Björnsdóttir tekur við stöðu framkvæmdastjóra skautsmiðju- og kerskála. Birna hóf störf hjá Norðuráli árið 2005 og hefur sinnt ýmsum störfum innan fyrirtækisins. Síðustu ár hefur hún starfað sem deildarstjóri framleiðslustýringar.