Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, hefur ákveðið að sækist ekki eftir endurkjöri í komandi kosningum.

Í tilkynningu frá Gunnari kemur fram að atburðir síðustu mánaða og vikna hafi kallað fram uppgjör í stjórnmálum og víðtæka umræðu um uppstokkun og aukið lýðræði.

„Við þessar aðstæður er eðlilegt að við sem nú sitjum á þingi,  hvort heldur í lengri eða skemmri tíma, speglum okkur í umræðunni, frekar en okkur sjálfum og reynum eftir fremsta megni að hlusta á skilaboð þjóðarinnar,“ segir Gunnar í tilkynningunni.

„Kallað hefur verið eftir því að við stígum til hliðar og gerum mögulega nauðsynlega endurnýjun í stjórnmálunum. Þrátt fyrir að hafa aðeins setið 2 ár á Alþingi, hef ég hlustað ítarlega á þessa umræðu og tekið hana á ríkan hátt til mín.“

Þá segir Gunnar að í ljósi þessa, m.a. til þess að skapa svigrúm fyrir nauðsynlega endurnýjun í efstu sætum framboðslistans hafi hann ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri í komandi Alþingiskosningum.

„Ég tek þessa ákvörðun í sátt við alla þá sem ég hef starfað með í öllum stjórnmálaflokkum, um leið og ég þakka þann mikla stuðning og hvatningu sem ég hef jafnan fundið fyrir,“ segir Gunnar.

„Það eru forréttindi að hafa verið trúað fyrir starfi alþingismannsins og vil ég þakka stuðningsmönnum í kjördæminu sem valið hafa mig sem fulltrúa sinn á Alþingi innilega fyrir traustið, ekki hvað síst Hafnfirðingum. Ég er einnig þakklátur þing- og samstarfsflokkum á Alþingi fyrir að hafa valið mig til mikilvægra embætta s.s. formanns fjárlaganefndar. Þar hef ég leyft ólíkum sjónarmiðum að njóta sín og reynt að draga fram það besta fram hjá öllum nefndarmönnum, en einkar gott starf hefur verið unnið í fjárlaganefndinni við erfiðar aðstæður.“