Gunnar Ágúst Beinteinsson
Gunnar Ágúst Beinteinsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Gunnar Ágúst Beinteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs á Landspítala.

Gunnar hefur reynslu af mannauðsmálum, stefnumótun, rekstri og stjórnun, en hann hóf störf hjá Actavis Group árið 2004 sem forstöðumaður stefnumótunar og frá árinu 2006 sem framkvæmdastjóri mannauðsmála.

Árið 2015 varð hann framkvæmdastjóri rekstrar og mannauðsmála hjá Xantis Pharma AG í Sviss. Frá því fyrr á þessu ári hefur hann starfað við eigið ráðgjafafyrirtæki í Sviss.

Gunnar lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaranámi með áherslu á stefnumótun og stjórnun frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn árið 2002. Jafnframt spilaði hann handbolta með FH og íslenska landsliðinu á árunum 1985-2000.

Samhliða þessu lætur af störfum framkvæmdastjóra mannauðs Ásta Bjarnadóttir, eftir 5 ár í uppbyggingu mannauðsstarfs á spítalanum. Hún mun gegna starfi framkvæmdastjóra mannauðs til 1. janúar og gert er ráð fyrir kröftum hennar áfram á Landspítala segir í tilkynningu frá stofnuninni.