Gunnar Ólafsson hefur tekið við stöðu sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs hjá Þekkingu og tekur hann sætií framkvæmdastjórn. Helsta verkefni hans er að leiða sölu- og markaðsmál sem og viðskiptastýringu félagsins inn í nýja tíma, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Lengst af sínum starfsferli hefur Gunnar starfað við sölu og stjórnun söluteyma sem og uppbyggingu þeirra. Gunnar var meðstofnandi Netgíró þar sem hann stýrði sölu og viðskiptaþróun um árabil en kemur til Þekkingar frá Perlunni þar sem hann var sölu- og markaðsstjóri. Áður hafði Gunnar starfað sem sölustjóri alþjóðadeildar Valitor og sölu- og markaðsstjóri Aha.is.

Gunnar er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með MBA gráðu frá Copenhagen BusinessSchool, auk IPMA-D vottunar í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands, viðurkenndur stjórnarmaður og MiniMBA í markaðsfræði og vörumerkjastjórnun frá Akademias.

„Það sem heillaði mig við Þekkingu var skýr framtíðarsýn og hlutverk fyrirtækisins sem leiðandiþjónustuaðili á íslenskum UT markaði. Þegar ég kynntist svo starfsfólkinu sá ég hversu skemmtilegtverkefni það verður að leiða hópinn til árangurs með leikgleði og ofurþjónustu að leiðarljósi," segir Gunnar.

„Það er mikill fengur fyrir Þekkingu og viðskiptavini okkar að fá Gunnar í liðið. Víðtæk reynsla hans ogþekking kemur til með að styrkja okkar frábæra hóp enn frekar og gerir okkur vel í stakk búin til þess aðtakast á við krefjandi og spennandi tíma framundan. Við bjóðum hann velkominn til starfa og hlökkummikið til samstarfsins," segir Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar.

Um Þekkingu:

Þekking er upplýsingatæknifyrirtæki sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu og trausta ráðgjöf.Fjölbreyttur hópur sérfræðinga Þekkingar sérhæfir sig í upplýsingaöryggi, rekstri tölvukerfa, þjónustu viðnotendur, afgreiðslulausnum og öðrum stafrænum lausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir.