Gunnar Sigurðsson hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri hjá framtakssjóðasviði Virðingar.

Gunnar hefur að undanförnu starfað við ýmis ráðgjafarstörf og fjárfestingar, aðallega í smásölutengdum verkefnum í Bretlandi. Hann var ráðgjafi slitastjórnar Landsbankans á árunum 2009 til 2011.

Áður starfaði Gunnar hjá Baugi Group, fyrst sem framkvæmdastjóri erlendra fjárfestinga og síðar sem forstjóri.