Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fundaði í dag með Patrick Borbey, formanni embættismannanefndar Norðurskautsráðsins. Borbey er frá Kanada og fer landið með formennsku í ráðinu næstu tvö árin. Á fundinum gerði Gunnar Bragi grein fyrir mikilvægi norðurslóða í utanríkisstefnu stjórnvalda og mikilvægi Norðurskautsráðsins fyrir alþjóðasamvinnu á norðurslóðum í ljósi örra umhverfis- og samfélagsbreytinga á svæðinu.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir ennfremur að Patrick Borbey lýsti áherslum Kanada á að styrkja samstarf um efnahags- og samfélagsþróun á norðurslóðum. Meðal verkefna ráðsins næstu árin er stofnun samstarfsvettvangs um viðskipti á svæðinu, sem Ísland leiðir ásamt Kanada, Finnlandi og Rússlandi, þróun regluverks og forvarna vegna norðursiglinga og olíumengunar og aukið vísindasamstarf norðurskautsríkja.

Utanríkisráðherra lýsti sérstaklega yfir ánægju með að Grænland hefði ákveðið að hefja aftur þátttöku í störfum ráðsins og sagði að Ísland legði ríka áherslu á framlag og þátttöku Grænlands í öllu starfi Norðurskautsráðsins.

Borbey fundaði einnig með sérfræðingum utanríkisráðuneytisins í málefnum norðurslóða og fulltrúum frá nýstofnuðu Norðurslóða-viðskiptaráði.